Sjónvarpskvöld
Sáuð þið The Apprentice á sunnudaginn?? Vá, hvað Bradford var vitlaus að bjóða sig fram. Ég trúði nú samt ekki að Trumpinn myndi reka hann fyrir það. Hann stóð sig nefnilega eiginlega best í liðinu. Ég hefði viljað sjá Stacie fara, hún er ekkert smá skrítin!! Í kvöld er það svo Americas Next Top Model, ég er ennþá brjáluð yfir að Camille hafi ekki verið rekin burtu seinast. Manneskjan er fullkomlega óþolandi. Æ, ég vorkenni henni samt pínulítið, það er eins og hún bara viti ekki betur. Mér finnst stelpan þarna sem er hrædd við pabba sinn vera rosa sæt og Yvonne er með þetta típíska fyrirsætulúkk. Ég er samt ekki farin að halda með neinni ennþá..... geri það yfirleitt ekki fyrr en svona í lokin.
Extreme makeover er svo akkúrat á sama tíma á stöð 2 þannig að ég verð annaðhvort að missa af því eða nenna að taka það upp. Hmm.... við sjáum til. Hann Rikki minn ætlar á eitthvað næturbrölt í nótt. Það var að koma ný sending af fiskum til Furðufugla og Fylgisfiska og hann ætlar að hjálpa til með það, já hann er spes þessi elska ;)
Svo er það bara Idol-dagur ekki á morgun heldur hinn víhaaaa. Það nefnilega styttir aðeins vikuna að taka upp Idol og horfa á það nokkrum sinnum í vikunni. Ég er klikkuð.. ég veit ;) Þeir sem þekkja mig vita samt að þetta er það sem ég ELSKA :)
Adios....

Bloggarar
Litlir bloggarar