Been there... broke that!

þriðjudagur, október 19, 2004

Ræktin rúlar!

Jæja, þá er ég byrjuð í ræktinni. Við mættum galvaskar kl. 19 í gær í Sporthúsið. Vildum sko vera tímanlega í því þótt að tíminn ætti ekki að byrja fyrr en kl. 19:30. Við enduðum að sjálfsögðu með því að bíða dágóða stund eftir að tíminn byrjaði ;) En VÁ hvað þetta var gaman!!!! Unnur Pálmarsdóttir var að kenna okkur og hún er ekkert smá frábær og hress :) Við tókum sko veeeel á því, ég var sko aldeilis farin að þreytast í restina... enda ekki vön því að púla neitt að ráði ;) En ég held samt að þetta sé eitt af því skemmtilegasta sem ég hef nokkurn tímann gert og ég get ekki beðið eftir að fara aftur á morgun!!

Ég náði að vera komin heim fyrir Survivor og sem betur fer kom hann aðeins á óvart. Kominn tími á að breyta þessum liðum. Mér fannst samt að stelpurnar hefðu ekki átt að reka út karlmann, frekar þessa leiðinlegu Ami þarna. Ég held að það geti alveg borgað sig að hafa karlmann í hópnum. Æ, mér er samt nokk sama.... ég er ekki byrjuð að halda með neinum ennþá þannig að maður er ekkert byrjaður að svekkja sig almennilega á þessu.

Æ gó vörk ná...... adios!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters