Been there... broke that!

fimmtudagur, október 21, 2004

Ræktin í gær, kökur í kvöld ;)

Já, skellti mér aftur í pömpið í gærkvöldi. Það var að sjálfsögðu dúndurstuð... en miiiiiiklu erfiðara en á mánudaginn. Vá, ég var farin að skjálfa öll bara í endann. Já, þá myndið þið kannski hugsa að ég hefði átt að létta aðeins á stönginni hjá mér. Hmmm það hefði verið góð hugmynd en þar sem festingarnar á stönginni minni klikkuðu allt í einu þá gat ég ekki skipt um lóð buuhuuu. Þannig að ég var föst með sömu lóðin í öllum æfingunum af því ég þorði ekki að fara að sækja nýja stöng, algjör auli. Það endaði með því að Birna bauðst til að skipta við mig um stöng he he, ætli hún hafi ekki tekið eftir því að ég titraði öll þegar ég lyfti muhahahaha ;) Ég passa mig extra vel næst... en það verður á laugardaginn :)

Í kvöld verður svo brunað í afmæli til Emilíu, dóttur hennar Steinu. Það verður smá ferðalag því þau búa í Vogum á Vatnsleysuströnd. Ég rata að sjálfsögðu ekki þangað þannig að ég verð í samfloti með stelpunum. Það verður gaman að hitta þær allar aftur :) Mér finnst svo kominn tími á að hittast allar eitthvað kvöldið, án þess að vera í barnaafmæli.... núna er Idol byrjað og svona... getum glápt á það með léttvínsglas í hönd *rop* ;)

Annars vil ég bara óska henni Hildi til hamingju með ástmann sinn. Hann á afmæli í dag blessaður, orðinn 29 ára :) Til hamingju Pétur ef þú lest bloggið mitt :)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters