Been there... broke that!

laugardagur, október 30, 2004

Letidagur...

Það kviknaði ekki í bankanum í gær þannig að ég hef víst ekki þessa náðargáfu sem ég var virkilega farin að halda að ég hefði. Bömmer! Ég vann bara minn fulla vinnudag og rúmlega það því ég var ekki komin út fyrr en hálfsex og þá var brunað heim og skipt um föt því leiðin lá í Sporthúsið. Ég veit ekki hvernig mér tókst að keyra frá Vesturbænum í Kópavoginn á þvílíkum umferðartíma, fara inn heima og skipta um föt og vera komin í Sporthúsið kl. 17:45. En einhvernveginn tókst mér það :) Ég ætlaði sko EKKI að missa af þessu. Við Olgur ætluðum nefnilega í rpm sem er spinning tími eeeennn því miður þá voru bara 2 hjól laus en við vorum þrjár. (Fjóla var ekki með því hún var í Eyjum.) Jæja, við skelltum okkur þá bara í eitthvað sem ég veit ekki hvað heitir en það virkar þannig að það er eiginlega alveg eins og þú sért að labba upp tröppur, mjög sniðugt ;) Við vorum í því í HÁLFTÍMA, ég lýg því sko ekki. Ég hélt að lappirnar myndu detta af mér þegar ég færi af þessu.... en þetta hafðist og ég er ekkert smá stolt af mér :) Við Maja vorum reyndar farnar að horfa löngunaraugum á hjólin við hliðina á okkur en Birna harðstjóri hélt nú ekki og skipaði okkur meira að segja að stilla á erfiðara prógram seinustu 10 mínútunar. Við hlýddum að sjálfsögu móðar og másandi... en sáum sko ekki eftir því :)

Í gærkvöldi kom svo Júlía í sína venjubundnu Idol-heimsókn. Svo lá leiðin eftir það að sjálfsögðu á Catalinu þar sem við fengum okkur rautt og hvítt og spjölluðum um heima og geima. Þar var meðal annars ákveðið að taka almennilegt djamm þann 13. nóvember sem er eftir akkúrat 2 vikur. Ætlum að byrja í Smáralind um kl. 16, kíkja á einhver föt... svo verður kíkt á kaffihús.. svo farið heim í sturtu.... svo verður farið heim til Írisar þar sem við ætlum að mála okkur og greiða okkur og svoleiðis. Erum að hugsa um að taka bara upp Idol kvöldið áður og glápa á það hjá Írisi á meðan við puntum okkur. Ohh það verður geggjað gaman hjá okkur, ég veit ekki hvað það er langt síðan við djömmuðum síðast :)

Mér leiðist alveg hrikalega í dag. Ég er svona þrisvar sinnum búin að vera á leiðinni út í dag en alltaf hætt við. Ég veit ekki af hverju... ég einfaldlega nenni ekki neinu. Langar bara að dagurinn líði og klukkan verði ca. 21 og þá myndi ég vilja leigja spólu, borða snakk og drekka kók í rólegheitunum. Hmmm hljómar eins og plan ;)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters