Been there... broke that!

föstudagur, október 29, 2004

Ja hérna hér...

Núna sit ég í vinnunni í þvílíku klúðri. Yfirmaðurinn tók nefnilega með sér lykla að hvelfingunni í gær þegar við lokuðum og svo biðum við bara og biðum í morgun og hann lét ekki sjá sig. Á endanum hringdum við auðvitað í hann og þá var hann bara á fundi og átti að vera til hádegis. Hann er á leiðinni hingað núna á fullu spani svo við getum opnað hvelfinguna, við gerum ekki mikið fyrr. Við segjum bara við fólk sem kemur að því miður getum við ekki afgreitt það með peninga. Piff, mér gæti ekki verið meira sama, vonandi kemur hann bara ekkert með þennan lykil :( Jiiii.....hahahaha, ég hefði ekki átt að segja þetta. Hann var að hringja akkúrat núna þegar ég var að skrifa þetta og hann lenti í smá óhappi á leiðinni, það var keyrt á hann þannig að hann er fastur einhversstaðar að gera tjónaskýrslu og seinkar eitthvað meira. Já, þetta var furðulegt... ætti að ég óska einhvers meira... kannski að það kvikni í þannig að það þurfi að rýma bankann og ég geti farið heim? Hmmmm auðvitað myndi ég líka óska þess að enginn slasaðist.... ok... ég ætla að prófa.....

Læt ykkur vita hvað gerist ;)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters