Idol á morgun :)
Vúhúúú... ég er svo hamingjusöm að Idolið sé byrjað aftur. Mér verður hlýtt í hjartanu þegar ég hugsa um föstudaga mmmm :) Ég sver það ég lifi fyrir þetta! Ég hlakka samt eiginlega meira til þegar American Idol byrjar, það er einhvernveginn aðeins meira spennandi. Náttúrulega líka stærra og flottara. Æ, er ég núna að svíkja lit fyrst ég segi að íslenskt sé verra??? Nei, nei. Mér finnst íslenska Idolið hreinasta snilld. Ég á samt erfitt með að horfa á fyrstu þættina eins og þessa sem er í gangi núna... áheyrnarprufurnar!! Úff, hvað ég fer stundum hjá mér og vorkenni liðnu. Eins og t.d. gaurinn sem "söng" Ó borg mín borg. Ég hélt sko í alvörunni að hann myndi fá hjartastopp á staðnum. Greyið strákurinn :(
Ég er með einhvern voðalegan kvíðahnút í maganum. Litla daman er nefnilega að byrja á nýjum leikskóla á mánudaginn og mér finnst þetta hrikalega erfitt. Hún er líka svo mikil mömmu og pabbastelpa þannig að aðlögunun á eftir að taka dágóðan tíma held ég... og ég get sko ekki sagt að ég hafi mikið af honum. Brjálað að gera í vinnunni og algjörlega undirmannað! Rikki verður að vera mikið með henni þarna og svo ætlar mamma að hjálpa okkur líka, sækja hana og hafa hana þangað til við erum búin að vinna. Æ, litla snúllan, þetta verður erfið vika fyrir hana....
Í dag er hann Rikki búinn að vera reyklaus í 3 mánuði. Algjör snillingur :)
Farin í mat, bæ í bili :)

Bloggarar
Litlir bloggarar