Been there... broke that!

mánudagur, október 11, 2004

Helgin búin...

Já, þetta var fín helgi. Fengum gesti alla dagana og ég var sveitt í eldhúsinu annaðhvort að elda eða baka, svona á þetta að vera :) Ég skrapp reyndar út bæði kvöldin en ekki fyrr en seint og um síðir. Á föstudagskvöldið kíkti ég með Írisi á Cafe Catalinu í Hamraborginni. Ég er nefnilega orðinn nýi fastagesturinn þar ;) Við fengum okkur einn kaldan og hlustuðum á trúbadorinn spila. Ég missti einmitt röddina mína þetta tiltekna kvöld... og ekki vegna þess að ég hafi verið að syngja með... þvert á móti. Ég var bara að reyna að tala þannig að Íris heyrði í mér. Ohh ég er orðin svo gömul og grá að ég þoli ekki svona læti. Ég vaknaði daginn eftir með hausverk og enga rödd en það jafnaði sig þegar líða tók á daginn. Um kvöldið kom Júlía í heimsókn og ég horfði með henni á Idol sem ég tók upp fyrir hana kvöldið áður. Aldrei leiðinlegt að horfa á Idol. Stefni meira að segja að því að horfa á það einu sinni enn í þessari viku með Hildi ;) Jæja, við Júlía litum svo aðeins inn á Cafe Catalinu, en ekki hvað ;) Þangað kom svo Íris og við drukkum kaffi í lítratali ;) Trúbadorinn var einnig mættur á staðinn þannig að röddin mín gaf sig aftur!!

Andrea byrjaði í aðlögun á Arnarsmára í morgun og við Rikki fórum með henni. Þetta gekk alveg rosalega vel og ég hef góða tilfinningu held ég bara... hmmm ekki mjög líkt mér, enda vatnsberi hér á ferð ;) Rikki verður eiginlega mest með henni í aðlöguninni. Ég mjög erfitt með að komast úr vinnunni þessa dagana en góðu fréttirnar eru að það byrjar ný stelpa á miðvikudaginn :) Það þýðir að ég get líklegast hætt um mánaðamótin jibbííííí :o) Get ekki beðið eftir að byrja í nýju vinnunni, það verður geggjað!

Jæja, bið að heilsa ykkur í bili.....



Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters