Been there... broke that!

mánudagur, október 18, 2004

Glatað!

Ohh... ég er eitthvað mega pirruð í dag. Samt er ég bara búin að vera vakandi í 2 tíma og er nýmætt í vinnuna. Málið er að á föstudaginn talaði ég við yfirmanninn minn hérna og spurði hvort ég myndi ekki losna um mánaðamótin eins og ég bað um. Hann sagði að því miður væru þau ekki búin að finna manneskju fyrir mig þannig að hann getur ekki lofað mér neinu. Halló, það var að byrja nýr starfsmaður hérna í seinustu viku og hún getur bara alveg komið í staðinn fyrir mig eins og hvern annan pirrrrrrrr!!!! Ég vil komast í nýju vinnuna mína buuuhuuu :(

Jæja, þá er Stacie J. klikkhaus farin úr The Apprentice. Ég vorkenndi henni samt þegar hún var rekin greyið.... það er alltaf glatað þegar það eru allir á móti einni manneskju. Svo er það bara Survivorinn í kvöld, ætli mennirnir tapi ekki og reki út mesta gæjann... frekar fyrirsjáanlegt bara. Ótrúlega vitlausir gaurar!

Æ, ég blogga meira á eftir þegar morgunfýlan er farin úr mér ;)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters