Þú færð kraft úr Kókómjólk ;)
Skrítið hvað maður getur orðið háður varasalva. Ég er sko í alvöru HÁÐ varasalva og kæmist aldrei af lengur en í kannski 2 tíma án þess að smyrja á mig smá varasalva ;) Reyndar er ég búin að venja mig af þessum týpísku eins og t.d. Labello og þessum bláu í dollunum en það sem ég nota alltaf núna er Vaseline eða Júgursmyrsl. Mörgum finnst mjög fyndið að ég sé með heilu krukkurnar alltaf í töskunni! En málið er að maður fær eiginlega bara varaþurrk af því að nota varasalva. Eins og með svitalyktareyði, ég er alveg handviss um að ef fólk byrjar að nota svoleiðis alltaf þá byrjar að koma svitalykt af því þegar það gerir það ekki. Æ, skiljið þið mig? Ég t.d. hef aldrei vanið mig á að nota svitalyktareyði og það er kemur heldur aldrei svitalykt af mér... og hana nú!! Ekki veit ég af hverju ég er að hugsa um þetta núna, kannski vegna þess að ég er búin að týna Vaselininu mínu og get ekki beðið eftir hádeginu, ætla sko beint út á bensínstöð að kaupa mér einhvern bráðabirgða-varasalva þangað til ég finn Vaselinið!!
Svo er það pömpið í kvöld :) Mér var reyndar bent á eitt á föstudaginn sem ég ætla að taka til athugunar og það er að drekka eina kókómjólk alltaf þegar ég er búin að æfa. Málið er nefnilega að maður getur orðið heimskur af of mikilli æfingu.... alveg satt!! ;) Til þess að byggja upp vöðva þarf maður sykur þannig að maður notar allan sykurinn þegar maður æfir til að byggja upp vöðvana. En heilinn þarf líka sykur... og hann verður útundan! Þá er málið að skella í sig einni kókómjólk því það er svo mikill sykur í henni... alveg 12 sykurmolar skal ég segja ykkur!! Jább, þetta sagði ung og vitur kona mér þannig að ég tek enga ábyrgð á hvort þetta er rétt eða ekki... en betra er að hafa varann á, ekki satt? Stelpur, munið eftir kókómjólkinn í kvöld ;)

Bloggarar
Litlir bloggarar