Been there... broke that!

þriðjudagur, október 05, 2004

Bömmer :(

Ég fékk að kynnast öllum mínum nágrönnum með tölu í gærkvöldi á ekki mjög skemmtilegan hátt skal ég segja ykkur. Sko, Rikki var að fá sér fiskabúr og var í því í gærkvöldi að fylla það, skola sandinn og steinana í baðinu og svoleiðis. Andrea fékk að hjálpa og hafði ekkert smá gaman að því. Jæja, þau voru búin að vera að þessu í einn eða tvo klukkutíma. Ég var að vaska upp þegar vatnið hætti allt í einu að renna. Mér fannst þetta frekar grunsamlegt en pældi ekki mikið í því. Hélt að þetta liði bara hjá. Allt í einu er bankað á hurðina og fyrir framan stendur stelpan sem á heima á neðri hæðinni. Hún segir okkur að það sé bara allt á floti niðri í bílageymslu og það sé kominn pípari að kíkja á þetta. Hún sagði líka að hann héldi að þetta kæmi frá einhverri íbúð í húsinu. Hmm... við sögðum henni að við værum nú reyndar búin að vera að nota vatnið mjög mikið. Píparinn kom upp til okkar og kíkti á allt hjá okkur en sagði að það gæti eiginlega ekki verið að þetta hefði komið frá okkur. Þá segir hann Rikki minn allt í einu frá því að baðið hefði reyndar stíflast hjá honum áðan og hann hefði losað aðeins um eitthvað í niðurfallinu. Píparinn kíkti á það og jú jú. Vatnslásinn í niðurfallinu hafði brotnað og allt vatnið sem fór niður um það fór bara beinr niður í næstu íbúð og líka í bílageymsluna. Já, þarna voru sökudólgarnir fundnir, það vorum VIÐ!!! Þetta var nú yndisleg leið til að kynnast liðinu hérna, veggirnir í íbúðinni fyrir neðan voru allir bólgnir og bílageymslan flæðandi í vatni sem reyndar var búið að hreinsa upp. Mig hefur aldrei langað jafnmikið að hverfa ofan í jörðina eins og þarna. Ég gaf Rikka versta svipinn minn en brosti framan í nágrannana ;) Píparinn sagði að þetta væri bara eins og hvert annað slys sem gæti alltaf komið fyrir og þetta væri ekkert mál. Tryggingar húsfélagsins borga þetta allt saman. Mér er alveg sama, mér finnst þetta alveg hrikalegt. Núna læðist ég hér um eins og mús og þori ekki að hitta neinn. Algjör bömmer!!

Jæja, varð að deila þessu með ykkur. Núna er ég farin að sofa!

Góða nótt!


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters