Yndislegt líf :)
Okkur líkar alveg rosalega vel í Lækjasmáranum og erum svona að klára að koma okkur fyrir. Í gær eldaði ég steiktan fisk og hafði með lauk, kartöflur og feiti mmmm. Það er svo gaman að vera orðin húsmóðir aftur :) Ég er í einhverju súper dúper góðu skapi í dag en ég hef grun um að það eigi ekki eftir að endast lengi þar sem vinnudagurinn er bara nýhafinn. Ég verð nefnilega að segja að ég er alls ekki nógu ánægð hér þessa dagana. Við erum bara 2 gjaldkerar því það vantar svo fólk og það þýðir bara tvöföld vinna fyrir okkur.... eða þreföld fyrir mig og ekki hinn hmmmm... ef þið skiljið hvað ég á við!!! Ég hélt í alvörunni að ég myndi myrða einhvern í gær áður en dagurinn myndi enda, úff það er ekki hollt að vera svona pirraður! Kannski er þetta ástæðan fyrir góða skapinu mínu í dag... ég á kannski ekki til meiri pirring inni í mér... eða ég vona það. Ég vil ekki sjá daginn verða eins og daginn í gær og hana nú!!!
Í dag á hann elsku tengdapabbi minn afmæli þannig að kannski kíkjum við í heimsókn í Brekkubæinn eftir vinnu. Svo ætluðu Hildur, Siggi og Drífa að koma í mat til okkar í kvöld og Siggi ætlaði að kíkja á tölvuna okkar. Ohh, hlakka til. Það er svo gaman að fá gesti :) Andrea er líka öll að koma til en hún er búin að vera svo lítil í sér undanfarið. Þannig að það er bara allt að komast á fínt ról hjá okkur famelíunni :)
Í gærkvöldi kíkti ég í heimsókn til Írisar. Hún var að fá sér æðislega litla læðu, hún er svona alveg steingrá eins og kisan hans pabba. Ohh hún er svo lítil og sæt og vildi endilega skemma skóna mína og mig langaði mest að leyfa henni það bara af því að hún var svo sæt.... en maður verður víst líka að hugsa um fjárhaginn ;) Það er bannað að hafa gæludýr í Lækjasmáranum þannig að ég get ekki einu sinni pælt í því að fá mér kisu.... æ ég er líka bara pínu fegin.... það er vesen að hafa gæludýr. Rikki er reyndar búinn að heimta að hafa fiskabúr og ætli það komi ekki á næstu dögum. Ég get nú ekki sagt að ég sé neitt gasalega spennt en honum finnst þetta svo spennandi, hann er bara þannig að hann verður að eiga dýr, Andrea er greinilega ekki nóg múhahahaha ;)
Bæ í bili....

Bloggarar
Litlir bloggarar