Been there... broke that!

mánudagur, september 27, 2004

Ji dúdda mía!

Líf mitt hefur svo sannarlega tekið óvænta stefnu, en það byrjaði á því að ég klessti nýja bílinn okkar á föstudagskvöldið.... í bullandi órétti í þokkabót. Svo bara svona til að gera þetta aðeins skemmtilegra þá var þetta útlendingur sem ég klessti á. Þetta er alveg yndislegt! Hjólabúnaðurinn í bílnum okkar fór til helvítis þannig og hinn bílinn beyglaðist og brotnaði ljós og svo framvegis. Ohhhh ég er í of vondu skapi til að blogga um þetta!!!!!!!!!

Æ, svo er svona allskonar annað sem er ekki alveg að ganga upp. Það er bara vesen í sambandi við að byrja í nýrri vinnu. Ég er nefnilega á fyrirframgreiddum launum í bankanum þannig að ég verð launalaus í einn mánuð og það er aldrei gaman. Sérstaklega ekki þegar maður er nýfluttur. Svo er Andrea okkar að byrja á nýjum leikskóla í næstu viku og ég er með kvíðasting yfir því.

Jæja, ég ætla ekki að segja meira því þá verður þetta vælublogg og hver nennir að lesa þau??

Blogga meira þegar ég verð í betra skapi.


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters