Been there... broke that!

miðvikudagur, september 22, 2004

Ég á svo góða vini :)

Já, ég verð bara að monta mig á því hvað hún Jenný var sæt í gær þegar hún skrifaði um mig á bloggið sitt. Hún er svo frábær og mér finnst hræðilegt hvað við höfum misst mikið samband. Það er svo sannarlega ætlunin að breyta því á næstunni. Enda báðir komnar með litlar dúllur sem verða að fá að kynnast ;)

Ég vil taka fram að þessir "alræmdu rónar" sem hún minnist á eru engir aðrir en hún og Begga múhahahaha ;) Hérna kemur copy/paste frá hennar bloggi:

21.9.04

Til hamingju Kristín!

Allir að óska Kristínu til hamingju! Með hvað? ALLT! Það er allt að gerast hjá dömunni um þessar mundir : nýr bíll, nýtt húsnæði og ný vinna! Vonandi nuddast eitthvað af hennar velgengni yfir á mig ;)

Kristín þá:
Káfaði á gínum í fatabúðum borgarinnar og gekk niður laugaveginn með bleikan varalit þegar það var alveg "out". Hún var skotin í hausinn á miðbæjarrölti og kallaði köngla göndla. Hún sötraði bjór með tveimur alræmdum "rónum", ferðaðist með strætó og serveraði mat oní liðið af Keisaranum.

Kristín nú:
Orðin ráðsett frú og móðir í Kópavoginum, á uppleið í atvinnulífinu og keyrir um á kagga. Fer á Línu langsokk með familíunni á sunnudegi frekar en að liggja í þynku og það er víst erfitt að fá hana til að kíkja í miðbæinn um helgar.


Já, og mér þykir leiðinlegt að viðurkenna það en þetta í fyrri málsgreininni er allt saman hreinasti sannleikur, enda Jenný ekki þekkt fyrir að ljúga! En það er saga á bak við hverja einustu setningu... ég lofa því.

Jæja, best að halda áfram að lifa mínu fullkomna lífi ;)

Kristín gínuperri ;)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters