Flytjum í kvöld...
Ætlunin er að flytja í Lækjasmárann í kvöld eða seinnipartinn. Eða það var allavega planið þangað til ég leit út um gluggann í morgun. Úff, þvílíkt veður!!! En fólkið hér í vinnunni er að tala um að það eigi að stytta upp í kvöld. Já, það væri ágætt, ég nenni ekki að vera að þessu í marga daga. Það er samt allt að komast í stand þarna. Eldhúsið er tilbúið fyrir utan að mig vantar eldhúsborð... en samkvæmt Rikka mínum þá reddast það í dag :) Rikki var fram á nótt að mála herbergið hennar Andreu, það verður rosa sætt :) Við keyptum okkur svo þennan fína ísskáp í Heimilistækjum í gær þannig að það er allt að smella. Það eina sem okkur vantar eru ljósakrónur og gardínur en það liggur ekkert á því, það voru rúllugardínur skildar eftir í íbúðinni sem við getum notast við til að byrja með. Ég komst að því þegar ég tók upp úr kössunum okkar að ég á enga kaffivél... sorrý, ekkert kaffi að fá hjá mér ;) Svo erum við að litast um eftir rúmi fyrir stelpurnar og einhverri ódýrri uppþvottavél til að setja inn í þetta glæsilega gat í eldhúsinnréttingunni ;) En það liggur ekkert á einu eða neinu... aðalmálið er bara að gera kósí og koma sér fyrir...
Ég held að ég verði netlaus í nokkra daga núna svo verið þið sæl í bili, læt vita af mér þegar líður á næstu viku :D
Kv. Kristín Kópavogsmær!
Ég held að ég verði netlaus í nokkra daga núna svo verið þið sæl í bili, læt vita af mér þegar líður á næstu viku :D
Kv. Kristín Kópavogsmær!
Bloggarar
Litlir bloggarar