Been there... broke that!

laugardagur, september 18, 2004

Allt að koma :)

Jæja, þetta er allt saman að taka á sig ágæta mynd hérna hjá mér á nýja blogg-staðnum núna. Maja hjálpaði mér að gera þetta svona flott, núna lítur bloggið mitt út nákvæmlega eins og hennar he he ;) Hennar er líka geðveikt flott en ætli ég reyni ekki að breyta þessu með tímanum :)

Í kvöld ætlar hún Júlía pæja að koma til mín með rauðvín og ég er búin að kaupa osta mmmm þetta verður notó :) Svo er það meiri rauðvínsdrykkja á morgun með Jennýju og Beggu... spurning um að slaka á í drykkjunni múhahahahaa, þetta segja sko ekki þeir sem þekkja mig. Ég er frekar þekkt sem partípúperinn!

Jæja, best að fara að gera sig sæta og fína fyrir hana Þórunni. Hún er tilvonandi leigusali okkar, ég fer til hennar og skrifa undir eftir klukkutíma :)

Ef þið þekkið mig og eigið blogg, látið mig þá vita svo ég geti bætt ykkur á bloggara-listann minn. Hann er eitthvað hálftómlegur hmmm ;)


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters