Been there... broke that!

þriðjudagur, september 21, 2004

Allt að gerast í einu....

Já, líf mitt er aldeilis viðburðaríkt þessa dagana. Allt sem ég er búin að bíða eftir er einhvernveginn komið. Það voru allskonar hlutir í gangi en ég hugsaði með mér glætan að þetta eigi allt saman eftir að ganga upp... en jú... við keyptum bíl.... við fengum íbúð.... við borguðum allt sem við skulduðum... ég fékk nýja vinnu :) Þetta er ótrúlegt. Ég var að segja upp hérna fyrir ca. 50 mínútum og fæ vonandi að hætta í lok október. Á nýja staðnum eru bæði launin og vinnutíminn þúsund sinnum betri :) Vá, mig langar að gráta af gleði!!!! En ég ætla að hemja mig og brosa bara mínu blíðasta í allan dag... tja.. og kannski bara alla vikuna :)

Gærdagurinn var nefnilega alveg frábær! Ég var í fyrsta lagi í fríi í vinnunni þannig að ég gat dúllast með dúllunni minni allan daginn. Svo var hringt í mig frá LSR og mér sagt að mér byðist starfið ef ég vildi það :) Ég þáði það að sjálfsögðu :) Seinnipartinn fékk ég svo að vita að við fáum íbúðina um kvöldmatarleytið í dag, 10 dögum fyrr en ætlað var! Júlíu minni fannst þetta kalla á fagnaðarhöld svo hún keypti eina rauðvínsflösku og nart og við drukkum og nörtuðum fram til miðnættis. Rikki var látinn svæfa litlu prinsessuna enda var hann ánægður fyrir mína hönd :)

Jæja, mér er víst ekki borgað fyrir að blogga.
Bæ í bili....


Gestir síðan 10. nóv. 2005:

Hit Counter
Website Hit Counters